Blátt

Blátt er liturinn sem enginn sér nema vera annað hvort ástfanginn eða dapur.

Sem er kannski sami hluturinn.

Hafið er ekki blátt.

Himininn er ekki  blár.

Ekki bláskógur heldur.

Það er ekki hægt að treysta bláum.

Nema í ást og depurð.

Blár er gagnsær.

En ekki í þeim skilningi að vera auðskilinn.

Blár kann að leynast.

Hann er þar sem aðrir ættu að vera.

Einkum grár.

Svartur.

Grænn.

Jafnvel rauður.

Gulur.

Hann er aldrei saklaus, blár.

En hann eignar sér sakleysið.

Ég er að skrifa ritgerð um blátt.

Hún verður tileinkuð Bigga.

Biggi er á himnum.

Hann er örugglega að mála blátt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband