Í ólandi meiksins

Ein sælasta bók ársins er Umboðsmaður Íslands: Öll trixin í bókinni eftir Arnar Eggert Thoroddsen rokkblaðamann.

Þrátt fyrir sætkenndan hallærisganginn á kápu bókarinnar og ólíkindalegt viðfangsefnið þá er hér á ferðinni bók sem áhugafólk um poppkúltúr lætur vart fram hjá sér fara.

Bókin er áhugaverð heimild um dægurmenningu á Íslandi síðustu ár og það hvernig á að komast af í ólandi meiksins.

Bendi sérstaklega á mergjað upphaf bókarinnar þar sem lítil saga útskýrir hvernig poppheimurinn getur haft sett allt á annan endann á hinu stóra sviði pólitíkurinnar: Pólitískt líf Marðar Árnasonar hékk á júróvísjónskum bláþræði!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband